ég hef engu gleymt...

...þó að ég tali ekki um það og láti sem ekkert sé

Wednesday, October 27, 2004

Persónuleikapróf 2

Allir geta verið sammála um það að Ingunn er æðisleg og þó svo að við séum mis hreinskilin með aðdáun okkar á henni þá veit ég að innst inni langar öllum til að vera hún. Auðvitað getum við ekki orðið Ingunn, mörg höfum við reynt að apa eftir fatastílnum hennar, hárgreiðslunni og jafnvel talandanum en við getum í besta falli verið léleg eftirherma. En ekki örvænta það er ekki útilokað að það leynist lítil Ingunn inní þér, reyndu bara á það og taktu prófið.

#1 Getur þú vippað fram pizzu á 30 minútum hvenær sem er án þess að þurfa að fara út í búð?
a) já
b) nei

#2 Hefur þú alltaf rétt fyrir þér ?
a) já
b) nei

#3 Getur þú haldið uppi fullu félagslífi í þrjár vikur án þess að fara úr sófanum þínum?
a) já
b) nei

#4 Átt þú alltaf til góðar ráðleggingar við öllum vandamálum?
a) já
b) nei

#5 Getur þú réttlætt fyrir sjálfri þér allar þínar misgjörðir, svindl og svínarí með því að líta svo á að heimurinn skuldi þér?
a) já
b) nei


#6 Getur þú transformað þér úr gutter-hóru með maskara niðrá kinnar í geislandi gettó-prinsessu á 7 minútum?
a) já
b) nei

Niðurstöður:

1-2 já : Þú ert ekki mikil Ingunn í þér og eflaust ert þú ekki mjög hamingjusöm mannskja, en leitaðu ráða hjá henni Ingunni og hún mun örugglega beina þér á réttu brautina.

3-4 já : Það leynist greinilega svolítil Ingunn í þér en hugsanlega hefur heimurinn kennt þér að bæla hana inní þér, eina ráðið er að umgangast Ingunni nógu mikið og leyfa þinni innri Ingunni að blómstra óhindrað.

5-6 já : Þú hefur greinilega tileinkað þér lífsspeki Ingunnar af heilum hug og munt lifa hamingjusöm svo lengi sem þú hefur survival kitt Ingunnar í farteskinu, það er ljóst að þú gætir jafnvel lifað kjarnorkuvetur og samt haft það kósy.

3 Comments:

Blogger Olla Swanz said...

ó svo, ó svo fyndið... er samt ekki viss um að ég myndi fá háa einkunn í þessu prófi..

11:09 AM  
Anonymous Anonymous said...

eg skoradi 3 stig. Thad er svo sannalega Ingunn i mer, en hver getur bitad Ingunni? Er eitthvad til sem heitir Ingunn Extra? eda mega Ingunn?

1:30 PM  
Anonymous Anonymous said...

eg skoradi 3 stig. Thad er svo sannalega Ingunn i mer, en hver getur bitad Ingunni? Er eitthvad til sem heitir Ingunn Extra? eda mega Ingunn? Lovja Kiddy

1:30 PM  

Post a Comment

<< Home