ég hef engu gleymt...

...þó að ég tali ekki um það og láti sem ekkert sé

Monday, December 12, 2005

sjö hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey
1) læra að spila á eitthvað hljóðfæri, helst gítar svo ég geti verið geðveikt vinsæl í útilegunum, eftirpartýum og þrítugsafmælum.
2) keypt mér mat í Hagkaup án þess að rýna á verðmiðanna og kaupa mér einn poka þegar ég þarf í rauninni tvo
3) stofna hljómsveit
4) Skoða Graceland
5) semja allavega eitt lag sem verður klassísk gítar útilegu ballaða á Íslandi um ókomin ár
6) sjá um minn eigin sjónvarpsþátt um tónlist á rúv (í anda musikbyråen t.d)
7) hætta að apa allt upp eftir Ollu

7 hlutir sem ég get
1) prjónað
2) hætt að reykja (ég nenni því bara ekki akkúrat núna)
3) klárað fjárans magisterinn (ég nenni samt ekki að læra núna)
4) æxlað ábyrð (en ég ætla ekki að eiga börn alveg strax)
6) borgað skuldirnar mínar (ég á bara ekki pening fyrr en eftir áramót)
7) lifað án bíls (ég nenni samt ekki að hjóla í þessu veðri, tek bara leigubíl)

7 hlutir sem ég get ekki

1) ?
2) ?
3) ?
4) ?
5) ?
6) ?
7) ...ah já ég kann ekki að spila á hljóðfæri

7 hlutir sem heilla mig við hitt kynið1) sætur
2) sætur
3) sætur
4) sætur
5) sætur
6) sætur
7) trommuleikari

7 semi-frægir kallmenn sem heilla mig
1) Benedikt Erlings
2) Sveppi
3) Sammi Jagúar
4) Múgison
5) Sigmar í Kastkjósinu
6) Hulli Dags
7) Þorsteinn frá Hamri

7 orð eða setningar sem ég segi oftast
1) hvadda gera?
2) ha?
3) af hverju?
4) hverjum ertu annars skotin í?
5) hver er það?
6) er það gaurinn sem var í partýinu þarna um daginn?
7) nei þá veit ég ekkert hver þetta er!

7 kitlaðar manneskjur
1) Sigurgeir
2) Reynir
3) Gummi
4) Gutti
5) Batti
6) Nolli
7) Hulli

4 Comments:

Blogger Hugrún said...

Þóra... Sigmar í kastljósinu???? Hvað er að???? ojjj... Svona hlutir koma greinilega upp um mann... verð að íhuga svör mín enn betur... lofa samt að koma þessu frá mér í vikunni.

p.s. er ógó glöð að vera komin með netið heim... þá hætti ég að hanga hér á meðan ég á að vera vinna... eða mínka það stórlega... sé heldur ekki fram á að hafa tíma í vinnunni... er að gera svo marga skemmtilega hluti...

9:08 AM  
Blogger kaninka said...

æ mér datt það svona í hug að skella honum á þennan lista því hann er víst eitthvað að dúlla sér með nöfnu minni í kastljósinu, var svona aðalega að kalla á viðbrögð frekar en að segja það í einlægni að mér finndist hann heillandi, því ég var sjálf frekar sleginn þegar ég las það í séð og heyrt að þessi fríða frambærilega stúlka væri með þessum nörd.

7:53 AM  
Blogger kaninka said...

Þetta er bara dæmi um það hvað ég er áhrifagjörn, hafið þið ekki lent í því að sjá stelpu sem ykkur finnst flott og cool með gaur sem ykkur hefur alltaf þótt frekar glataður og hafa í kjölfarið farið að endurskoða mat ykkar á gæjanum. Maður hefur jafnvel heyrt um stelpur sem meta ekki karlpeninginn eftir verðleikum hans sjálfs heldur eftir fyrrverandi kærustum hans.

8:00 AM  
Anonymous Anonymous said...

gamla hermikrákan.. - en fínt pimp-up á síðunni samt

1:57 PM  

Post a Comment

<< Home