ég hef engu gleymt...

...þó að ég tali ekki um það og láti sem ekkert sé

Friday, April 07, 2006

hrópandi ósamræmi


Ég hef alltaf verið fylgiskona þess að vera ósamkvæm sjálfri mér. Mér finnst það líka hið besta mál að aðrir séu það líka. Ég hef yfirleitt gaman af því þegar fólk hefur á sér ólíkar hliðar sem fara kannski ekki alltaf fullkomnlega saman. Einhverntíman man ég eftir því að ég og Olla komumst að þeirri niðurstöðu að það væri í góðu lagi fyrir hana að borða fisk þó að hún kallaði sig grænmetisætu af dyraverndunarsjónarmiðum, hún væri nefnilega líka íslendingur og sem slíkur bæri henni að borða fisk. Svona ósamræmi finnast mér mjög heillandi ef fólk er á annað borð vart um það að það er ekki samkvæmt sjálfu sér, þetta skaðar engan í það minnsta. En svo er ég að lesa mér til um umræðuna um hlutverk og eðli kvenna á millistríðsárunum og mér blöskrar stundum hvað konur þessa tíma voru ósamkvæmar sjálfri sér. Þær tala stundum í hreinni andstöðu við sinn eigin veruleika og virðast alveglega ómeðvitaðar um það.
Björg C Þorláksson segir t.d í 19, júni blaði frá 1925:
“Við vitum að grundvallarmunur er á eðli karla og kvenna, og þar af leiðandi verður gjarna grundvallar-munur á aðalstörfum þeirra í þágu þjóðfélagsins. Af þessu leiðir að meginþorri karla og kvenna getur ekki átt samleið nema fremur stuttan spöl í menntamálum sínum.”

Björg er samsagt að útlista þá skoðun sína að kynin gætu átt samleið í almennri menntun en ekki sérmenntun. Halló, afhverju er kona sem er með doktorsgráðu í sameindalífeðliskjarnorkufrumtækni að prédika það að kynin eigi ekki saman menntunarlega? Er hún að reyna að hylma yfir þá "synd" að hún sjálf sé með framhaldsmenntun í karlafagi, ég get hreinlega ekki ímyndað mér hvað konan er að pæla.
Svo er það frú Sigrún Blöndal frænka mín og skólastýra húsmæðraskólans á Hallormstað sem taldi að of mikil menntun gæti verið konum stórhættuleg, hún skrifar í tímaritinu Hlín árið 1926 um eðli og hlutverk kvenna og segir:
“En ekki er nóg með það, að mentaðar konur eigi færri börn og líkindi sje til að þau verði ver uppalin, heldur virðist reynslan sýna að þessi börn sjeu ver byggð. Svo virðist sem mikil andleg áreynsla sé konum óeðlileg og skapi hjá þeim óeðli. Kemur það fram á ýmsan hátt, en kannske skýrast og um leið átakanlegast í þeirri staðreynd, að mjólkurmyndun er minni hjá þeim konum, stundum enginn. En það kemur líka fram sem þreyta og verkar þá á taugakerfið og veiklar það. Sú veiklun getur gengið í arf til afkvæmisins.”
Mitt á milli þessara grótesk lýsinga hennar Sigrúnar á áhrifum menntunar á konur vitnar Sigurún í kenningar Darwins, Lúthers, Schiller og John Stuart Mill, Hún talar um forn egypta, rómarveldi, upplýsinguna og frönsku stjórnarbyltingurna og áhrif þeirra á hugmyndaheim vesturlanda. Hún notar í greininni hugtök eins og ‘pósitívisme’ ‘realisme’ ‘félagsfræði’ ‘race biology’ og ‘cromagnummenn.’ En Halló! í sömu andrá talar hún um hve óholl menntun er konum. Svona ósamræmi á ég erfitt með að kyngja, getur það verið að þessar konur hafi í alvöru ekki fattað í hverslags hrópandi ósamræmi þær væru við sjálfa sig. Það er eins og báðar þessar konur hafi neitað að samsama sig öðrum konum. Ég á bara ekki orð.

7 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Neibb ennþá núll comments. Alltof langt að lesa. Verð búin á mánudag kannski.....

10:13 PM  
Anonymous Anonymous said...

hvað með grænmetisætu sem borðar hamborgara??? eins lengi og ég er self-confessed eins og þú bendir á...

en ég kláraði að lesa í gegnum þetta, ekki eins og ég hafi ekkert betra að gera í STOKKHÓLMI. óli fór út að skoða kirkjugarð, ætli ég kíki ekki út í Ica eða eitthvað annað sænskt.. jibbí kóla - óla(fía)

1:38 AM  
Anonymous Anonymous said...

ég held að þú sert pirruð vegna þess að það er ekki samræmi í þessu fyrir ritgerðina þína....og eitthvað point sem þú ætlar að gera? En allavega þá voru konur á þessum tíma ekkert að samhæfa stefnu sína, hver og ein skrifaði í sínu horni og skipti sennilega oft um skoðun, sem er allt í lagi. Er það ekki?

9:10 AM  
Anonymous Anonymous said...

Þóra á Geira þraukar hér
þögul vatns---á bakka.
Ef hún kynntist meira mér,
myndi hún eignast krakka.

5:39 AM  
Anonymous Anonymous said...

jæja er Fían hans Óla bara að láta sér leiðast í stokknum, eru ekki eitthverjir hipp og kúl svíar þarna sem hægt er að vingast við?

Ég er nú bara á þjóiðarbókhlöðunni að þykjast vera að læra, myndir þú frekar vilja vera í mínum sporum ha?

Þóra

10:19 AM  
Anonymous Anonymous said...

málið er samt að þessar konur eru ekkert að skipta um skoðun eins og þú segjir þær eru mjög staðfastar í rauninni og prédika sömu vitleysuna í áraraðir, allavega hún Sigrún, ég er búin að lesa greinar eftir hana frá bilinu 1926-38.
Þóra

10:22 AM  
Blogger Olla Swanz said...

þessi færsla hjá þér er orðin svo gömul að ég var búin að gleyma að ég hefði verið í stokkhólmi > því eins og ingunn segir; fleiri færslur og styttir..

en ég er niðrá þjóðó í herbergi 6 á þriðju hæð ef þú vilt banka uppá

5:17 AM  

Post a Comment

<< Home