ég hef engu gleymt...

...þó að ég tali ekki um það og láti sem ekkert sé

Monday, February 27, 2006

Annskotinn Ingunn ég var búin að skrifa geggjað fínt blogg um allt sem við vorum að tala um og það hvarf. Annskotinn Annskotinn Annskotinn Annskotinn

Wednesday, February 22, 2006

????

Jæja næsta föstudag verður Anna spyrill í drekktu betur. Ég er byrjuð að æfa á fullu og ÆTLA að vinna. Egóið er reyndar í algerum mínus núna hvað varðar hæfni mína í drekktu betur því við sigurgeir fengum mjög slæma útreið síðast þegar við fórum. Ég þori varla að segja hvað við fengum mörg stig, við skulum bara segja að við fengum ekki nema tæplega helminginn af þeim stigum sem við erum vön að fá. já allar þessar óskars spurningar fóru ekki vel í okkur, við erum svosem ágætlega fróð um kvikmyndir en erum frekar græn þegar kemur að því að vita hvað hin og þessi mynd fékk marga óskara. já þetta var alveg hreint skelfileg keppni fyrir okkur.
En næsta keppni á nú að snúast um sérsvið mitt, eitthvað kvenna-eitthvað, og sálartetrið mun ekki bíða þess bætur ef ég næ ekki allavega helmingi fleiri stig en ég er vön að fá, allavega svona 20 stig. já og þá þýðir ekkert annað en að undirbúa sig aðeins. Olla ég vona að þú gerir slíkt hið sama!

Gó team Þóra

Upphitunarspurning:
Hvaða menntun hafði Ingibjörg H Bjarnarson?

Tuesday, February 07, 2006

Sigþórgeira

Jæja... þetta litla "trading places" ævintýri okkar Sigurgeirs lagðist ekki vel í fólk. Ég var ekki búin að átta mig á því að fólk gerir svona skýran greinar mun á okkur sem persónum. Ég hélt að við værum með svo áþekkan smekk að það mundi hreinlega enginn taka eftir því þó við rugluðum reitum okkar saman.
Það er samt ágætt að vita að mín er ekki orðin fullkomnlega intigreruð í eitthvað Borg unit sem er sambland af persónuleka okkar tveggja, "resistance is futile you will now become Sigþórgeira". Eða það sem verra hefði verið að ég væri gjörsamlega kólóniseruð af Sigurgeiri og hans áhugamálum eins og konan talar um í Fever Pitch... Gaaah sem er kannski ekki svo fjarri lagi þar sem ég var að átta mig á að hér rétt að ofan var ég að kvóta í Star trek.
Hann hefur kólóniserað mig bölvaður þrjóturinn og nú er ég farin að nota myndlíkingar úr star trek. Þetta byrjar með litlu saklausu kvóti á blogginu en smátt og smátt verður unglingamyndafetishið mitt að þaggaðri menningu og gleymist í Star Trek-Battilstar Galactica hegemóníunni. Þetta gengur ekki ég verð að stöðva þessa þróun og hefja frelsisbaráttu með öllu heila klabbinu: Ég byrja á að semja sjálfstæðisyfirlýsingu sem upphefur gildi unglingamyndanna og Dirty dancing og Bring it on verða sett á stall sem tímamótaverk. Svo verð ég reka upp herör gegn nördaskapnum, Battelstar Galactica, Enterprise og jafnvel Lost mun ekki voðgangast í mínum húsum lengur og ég mun hefja málhreinsun til að eyða út nördalegum áhrifum í skrifum mínum og tali.
Og þegar nördaskapurinn hefur verið sigraður þá tekur við nýr og betri heimur, heimur rómantísku gamanmyndanna.

Saturday, February 04, 2006

4 sjónvarpsþættir sem ég elska að glápa á:
Star trek allar seríur
Monty python’s flying circus
Buffy
Friends

4 kvikmyndir sem ég get horft á aftur & aftur:
LOTR allur pakkinn
Star Wars allur pakkinn
Pink Floyd live at Pompeii
Toward the within

4 heimasíður sem ég dinglast inn á daglega:
Flak
Gaffalrtukkur
Loftbelgjagerðin
Hi.is

4 uppáhalds máltíðir:
Brauð með tómatsósu steiktum og pepperóní
Hamborgari
sjúkklingur alla mamma
íslenskt lambalæri

4 geisladiskar sem ég get hlustað á aftur & aftur:
Toward the within með Dead can dance
Hljóðlega af stað með Hjálmum
Going blank again með Ride
Selected ambient works II með Apex twin

Friday, February 03, 2006

Gulltryggt

Ég var að lesa bloggið hennar Hugrúnar og það var svo skemmtilegur útúrsnúningur á staðhæfingunni um “4 kvikmyndir sem ég get horft á aftur & aftur” Eflaust misskyldi hún spurninguna viljandi en í stað þess að setja bara hreint út hvaða kvikmyndir hún getur horft á aftur og aftur þá heldur hún þessu öllu saman opnu og segir bara hvaða fjórar leikkonur og fjórir leikkallar hún elskar og horfir á allar myndir með eða eitthvað í þá veruna. Allavega þá er ég svona líka ég ætti mjög erfitt að negla niður einhverjar ákveðnar myndir sem ég fíla endalaust, það breytist mjög fljótt og fer eftir í hvaða skapi ég er en leikarar er annað mál, fyrir mér eru alltaf ákveðnir leikarar gulltryggðir og ég horfi hreinlega á allar myndir sem ég rekst á með þeim, fyrir Hugrúnu eru þessir leikarar Gulltryggðir: “Allar Reese Witherspoon, Kirsten Dunst, Renée Zellweger og Cate Blanchett myndir ásamt öllum Colin Firth, Alan Rickman, Orlando Bloom og Keanu Reeves myndir” (endalaus hamingja 02.02. 2006)
Ég er nokk sammála kanski fyrir utan Orlando Bloom ég hefði skotið inn John Cusak í staðinn en allavega þá var ég að hugsa að enginn leikari er samt gulltryggður, ekki einu sinni Keanu þó hann sé endalust sætur og því ákvað ég að fara í smá rannsóknar leiðangur og finna allavega eina ömurlega mynd með öllum þessum leikurum he he he og niðurstöðurnar voru eftirfarandi:

Reese Witherspoon – Little Nicky – ok Reese hefur reyndar leikið í furðu fáum ömurlegum myndum Little Nicky er glötuð en ekkert ÖMURLEG, mig grunar reyndar að Desperate Choices: To Save My Child sé frekar ömurleg.
Kirsten Dunst - Get Over It – bara mjög óeftirminnileg mynd sem við tókum held ég saman einmitt af því að Kirsten Dunst er “safe bet” en enginn er fullkomin Fifteen and Pregnant er líka ábyggilega ekki skemmtileg en ég ætla mér ekki að komast að því.
Renée Zellweger – Chicago – trónir á efsta sæti listans sem ömurlegasta kvikmynd sögunnar, slökkti á henni eftir 20 min og hafið það í huga að ég þrælaði mér í gegnum king Artúr þó hún væri líka ömurleg og nærri þriggja tíma löng.
Cate Blanchett - Pushing Tin – þessa tókum við reyndar af því að John Cusak leikur í henni en Oh my god hvað hún er ömurleg, ég fékk testosterone eitrun við inntöku og hverjum dettur í hug að búa til hetjumynd um flugumferðarstjóra, ég hef séð fréttamyndir úr verkfalli flugumferðastjóra og þeir líta allir út eins og feitir stressaðir leigubílstjórar.
Colin Firth og Alan Rickman - Love Actually – þó svo að ég fíli yfirleitt yfirgengilegar rómantískar gamanmyndir þá bara virkaði þessi ekki vel á mig, þessar átta eða níu ástarsögur voru svo samhengislausar að myndin virkaði á mig sem 90 min auglýsingahlé með átta eða níú auglýsingum, ein frá Íslandsbanka, ein frá VÍS, ein frá Always Ultra, ein frá Happdrætti DAS, ein frá Ingvari Helgasyni, ein frá blah blah o. sv. Fr……..
Orlando Bloom - Troy og Kingdom of Heaven – Stundum er ég í stuði fyrir svona stórar epískar myndir um stórar hetjur og með stórum bardögum en þær heppnast bara ekki alltaf nógu vel þessar stóru myndir, þó að það sé ausið í þær peningum og valin maður í hverju horni þá bara vantar stundum eitthvað UMMF í myndina.
Keanu Reeves - The Replacements- ömurleg mynd, íþróttahetjuklisja frá upphafi til enda en það er nú kanski ekki við Keanu að sakast, hann reyndi víst eins og hann gat að komast frá því að leika í þessari mynd en lenti í lagadeilum við framleiðendur og var á endanum píndur til að leika í henni greyjið.

Heimild:
Internet Movie DataBase